Hausthappdrætti Skíðafélags Siglufjarðar Skíðaborg (SSS) fer fram um miðjan október 2024. Iðkendur félagsins, á aldrinum 5-15 ára, sjá um að selja miðana en allur ágóðinn af happdrættinu rennur í hið fjölbreytta starf félagsins.
SSS vill koma á framfæri þakklæti til allra sem gáfu vinninga í happdrættið og þeim sem kaupa/keyptu miða.
